top of page

Um Myrra studio

Myrra Studio er hlýlegt og skapandi rými þar sem áhersla er lögð á vellíðan, jafnvægi og tengingu líkama og huga. Við bjóðum upp á fjölbreytta jóga og barre tíma, viðburði og upplifanir sem hvetur til hreyfingar, samveru og gleði.

​

Markmiðið okkar er að skapa rými sem fólk sækist í aftur og aftur, ekki aðeins fyrir tímana, heldur líka fyrir stemninguna, samfélagið og tilfinninguna sem fylgir. Hjá Myrra Studio eru allir velkomnir, óháð reynslu eða getu, þar sem hreyfing snýst ekki aðeins um líkamlegan styrk heldur líka um að líða vel, bæði að innan sem utan.

DSCF6602.JPG
Tezza-0818.JPG
Tezza-1276.JPG
Tezza-2441 3.JPG

Myrra Studio er stofnað af systrunum Katrínu Myrru og Tinnu Sól, rými sem styrkir bæði líkama og sál í fallegu umhverfi með góðri stemningu. Hreyfing hefur alltaf verið stór hluti af þeirra lífi. Þær byrjuðu í fimleikum ungar að aldri og lærðu þar mikilvægi styrks, einbeitingar, liðleika og þrautseigju.
 

Eftir fimleikana lá leið Katrínar í CrossFit, en með tímanum fann hún þörf fyrir eitthvað sem næði dýpra en líkamleg hreyfing. Þannig kom jóga inn í líf hennar. Það sem byrjaði sem hreyfing á hvíldardögum varð fljótt að einhverju miklu meira. Hún fór til Tælands í jógakennaranám og þar fann hún jafnvægið í hreyfingu þar sem líkami og hugur mætast í kyrrð. Fyrir Katrínu snýst jóga ekki bara um það sem líkaminn getur gert, heldur um sambandið milli líkama og huga, þar sem ekki þarf að ná lengra, gera meira eða verða betri, heldur gefst rými til að vera einfaldlega til staðar. Það er sú upplifun sem hún vill deila með öðrum í Myrra Studio.

Sem unglingur glímdi Tinna við erfiða líkamsímynd og upplifði hreyfingu lengi sem leið til að reyna að breyta líkamanum. Með breyttu hugarfari fór hún smám saman að sjá hreyfingu í nýju ljósi, ekki sem leið til að líta öðruvísi út, heldur sem leið til að líða vel, byggja upp styrk og öðlast meira sjálfstraust. Þetta nýja hugarfar gaf henni kjark til að elta drauma sína í Barcelona, þar sem hún stundaði nám og fann fljótt ást sína á barre. Þar heillaðist hún af því hvernig taktur, styrkur, líkamsstaða og stöðugleiki sameinast í einni iðkun sem getur bæði styrkt og endurnært líkama og hug. Hún skráði sig fljótlega í barre-kennaranám í Barcelona til að dýpka þekkingu sína og öðlast betri skilning á iðkuninni. Í Myrra Studio vill hún skapa tíma þar sem fólk getur tengst líkamanum á jákvæðan hátt og gengið út úr salnum sterkari, léttari og endurnærðara.

Cream Envelope Setup

Skráðu þig á póstlista

Vertu skrefi á undan og fáðu fréttir af spennandi viðburðum, nýjum tímum og öllu því skemmtilega sem verður í boði hjá Myrra Studio.

bottom of page